Óska eftir tilboði
Faglærður múrari
Ég er múrari með 28 ára reynslu. Ég tek að mér múrverk og viðhald fyrir heimili og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.
Vönduð vinnubrögð
Ég legg áherslu á vandaðan undirbúning, efnisval sem hentar verkinu og snyrtilegan frágang.
Beint samband
Þú hefur beint samband við mig frá fyrstu fyrirspurn til verkloka. Ég fer yfir verkið með þér og við ákveðum umfang, vinnutilhögun og tímasetningar saman.
Reynsla í verki
Múrviðgerðir, flotun, flísalögn, pússning og tjörudúkur.
28 ár
Reynsla í múrverki
Verkefni í gegnum árin
Verkefni úr Innlit / útlit og Veggfóður
Þjónusta
Ég tek að mér múrviðgerðir, flotun, flísalögn, inni- og útipússningu og lagningu tjörudúks á steypt flöt þök fyrir heimili og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.
Heimili
Viðgerðir og endurbætur á veggjum, gólfum og tröppum, innan húss og utan. Umfang og vinnutilhögun eru ákveðin í samráði við þig.
Fyrirtæki
Múrverk og viðhald í atvinnuhúsnæði. Ég fer yfir umfang verksins og skipulegg vinnuna í samráði við þig, með hliðsjón af starfsemi á staðnum.
Viðhald
Viðgerðir á múr, veggjum og tröppum og lagning tjörudúks á steypt flöt þök. Vinnuaðferðir og efnisval miðast við ástand og undirlag.
Verkefni
Umsagnir viðskiptavina
Múr og viðhald fóru fram úr væntingum mínum með nákvæmni og vönduðu vinnubrögðum. Ég mæli eindregið með þeim í flísalagningar verkefni
Garðar. Kópavogur
Múr og viðhald ehf. sýndu fram á fagmennsku og sérþekkingu í gegnum allt verkefnið hjá okkur. Takk fyrir mig.
Og gangi ykkur vel.
Raggi. Rvk.
„Við treystum Múr og viðhaldi fyrir flóknu flísalagna vinnu og þeir skiluðu virkilega góðu handverki. Áhersla þeirra er greinilega að skila góðu verki af sér.
Einar






